Hafðu samband

Hvað er til ráða

Meðferð


Þrátt fyrir miklar framfarir í meðhöndlun á iktsýki (liðagigt), m.a. með tilkomu bíólógískra lyfja, fellst meðferðin enn fyrst og fremst í að dempa sjúkdómseinkennin, þ.e. verki og stirðleika. Bólgueyðandi lyf eins og NSAID og COX-2 hemlar eru oft notuð í þessum tilgangi. Sömu lyf eru einnig mikilvæg þegar stilla þarf verki og stirðleika hjá einstaklingum með slitgigt.

Kostnaður sjúklingsins og þjóðfélagsins vegna gigtsjúkdóma er geysimikill, en gigtsjúkdómar eru ein helsta orsök örorku hér á landi

Hvað get ég gert sjálf/sjálfur?


Ef þú hefur aðkenningu að, eða nýgengna slitgigt verður þú að fara vel með þig. Mikilvægt er að halda jöfnum líkamshita og koma í veg fyrir ofkælingu en það er einn liður í að halda slitgigt niðri. Skynsamlegt er að forðast endurteknar eða miklar líkamshreyfingar og langvarandi eða endurtekið líkamsálag. Farðu varlega með liðina þína - þú hefur þá fyrir lífstíð.

Mataræði


Heilbrigðar matarvenjur eru grundvöllur góðrar heilsu. Það gildir auðvitað líka fyrir einstaklinga með slitgigt, t.d. til þess að hafa orku fyrir reglubundna hreyfingu. Fyrir þá einstaklinga sem eru í yfirvigt og þjást af slitgigt getur megrun skipt verulegu máli sem einn hluti meðferðarinnar. Þú getur rætt við lækninn þinn eða næringafræðing um það hvernig best er að hagræða mataræðinu.

Hreyfing


Hættu alls ekki að hreyfa þig en veldu hreyfingu sem veldur ekki miklu álagi á liðina. Sund er t.d. skynsamlegra fyrir líkamann en skokk. Lífstíll sem einkennist af líkamlegri virkni hefur sýnt að minnki verki og auki starfsgetu.

Í byrjun getur verið sárt að æfa, verkjastillingin kemur kannski ekki í ljós fyrr en eftir nokkrar vikur. Til að ná varanlegum árangri er mikilvægt að velja þjálfun sem hentar vel og verður hluti af daglegu lífi. Eins og með aðra líkamsvefi verður álagið að vera hæfilegt fyrir brjóskið. Of lítið álag og of mikið álag getur aukið hættu á slitgigt. Til að byrja með geta vatnsleikfimi og stafganga verið hentug æfingaform. Ráðfærðu þig við lækni eða sjúkraþjálfa áður en þú byrjar að þjálfa.

Text SizeAAA