Þekktu þitt kólesteról
Kólesteról er fituefni. Við þörfnumst öll kólesteróls í blóðinu, en aðeins í litlu magni. Kólesterólið eða fituefnið er myndað í lifrinni og er í frumum líkamans, hormónum, D-vítamíni og gallsýrum.
Hægt er að skipta kólesteróli í 3 hópa:
|
Kólesteróltegund |
Læknisfræðilegt heiti |
Meðalgildi á Íslandi |
|
Slæmt kólesteról |
LDL-kólesteról |
3-4 mmól/lítra |
|
Gott kólesteról |
HDL-kólesteról |
1-2 mmól/lítra |
|
Summan af öllu kólesteróli |
Heildar-kólesteról |
5-7 mmól/lítra |
Of hátt kólesterólgildi leiðir til æðakölkunar. Ef æðakölkunin fær að þróast í friði getur hún leitt til hjarta- og æðasjúkdóma. Snemmkomin einkenni geta verið hjartakrampar. Ómeðhöndluð æðakölkun getur leitt til alvarlegra sjúkdóma, t.d. kransæðastíflu, blóðtappa í heila eða fótum.
Sumir sjúklingar hafa það mikla áhættu fyrir hjarta- og æðasjúkdómum að meðalgildi á kólesteróli er of hátt. Það á t.d. við um sjúklinga með týpu 2 sykursýki og þá sem hafa fengið alvarleg tilfelli af hjarta- og æðasjúkdómum.
Meðferðarmarkmið
Á Íslandi er mælt með, að kólesterólgildi áhættusjúklinga sé lækkað að lágmarki undir 5,0 mmól/lítra fyrir heildarkólesteról og 3,0 mmól/lítra fyrir LDL-kólesteról.
Meðferðarmarkmiðin hafa verið að lækka með tímanum og unnið er að nýrri endurskoðun á íslensku leiðbeiningunum. Kannski er það í ljósi þess að evrópsku leiðbeiningarnar gefa upp 4,5 fyrir heildarkólesteról og 2,5 fyrir LDL-kólesteról, auk þess að þær amerísku gefa upp 2,6 fyrir LDL-kólesteról sem lágmarksmeðferðarmarkmið fyrir sjúklinga í mikilli áhættu eins og t.d. sjúklinga með týpu 2 sykursýki eða sjúklinga með hjarta- og æðasjúkdóma.
Almennt er mælt með að því lægra sem kólesterólgildið er þeim mun betra.
Sjúklingar sem hafa ekki ennþá alvarlegan hjarta- og æðasjúkdóm, geta einnig haft kólesterólgildi, sem krefjast meðferðar. Hér þarf að koma til einstaklingsbundið læknisfræðilegt mat, þar sem aðrir áhættuþættir sjúklingsins eins og reykingar, blóðþrýstingur, aldur, kyn auk erfðaþátta eru einnig tekin með í dæmið.
Hvernig er hækkað kólesteról meðhöndlað?
Ef þú ert með æðakölkun áttu fyrst og fremst að breyta lífsstílnum, þannig að þú minnkir áhættuþættina á hjarta- og æðasjúkdómum. Með öðrum orðum, þá verður þú að hætta notkun tóbaks, breyta matarvenjum og auka hreyfingu og e.t.v. þarft þú einnig að fá kólesteróllækkandi lyfjameðferð.
Statín
95% þeirra sjúklinga, sem fá lyfjameðferð, fá meðferð með svonefndum statínum, sem er fyrsti kostur læknisins.
Statín eru hópur lyfja, sem eru notuð til að lækka kólesterólgildi í blóði. Statín verka með því að hemja myndun kólesteróls í líkamanum, en hún fer fram í lifrinni.
Í dag eru sex mismunandi statín á markaðinum á Íslandi.
Kólesteróllækkandi lyf eru lyfseðilsskyld. Ef þú þarfnast lyfjameðferðar vegna hækkaðs kólesterólgildis, mun dæmigerð meðferð hefjast með statínum, en búið er að sanna að þau lækka dánartíðni og tíðni hjarta- og æðasjúkdómstilfella. Áhrifin af statíninu þurfa að vera nógu kröftug til að þú náir þínum meðferðarmarkmiðum - t.d. að LDL-kólesterólið þitt sé meðhöndlað niður í þrjá. Ef þú ert þegar vel meðhöndlaður með kólesteróllækkandi lyfi, skaltu ekki að skipta um lyf án þess að athuga hvort kólesterólgildið þitt hækkar eftir skiptin yfir í nýja lyfið.
Þú getur lesið meira um kólesteról og hjartasjúkdóma á heimasíðu Hjartaverndar.