Hafðu samband

Hjartabilun

Þegar hjartavöðvinn er ekki fær um að dæla því magni af blóði, sem hjartað tekur á móti, út í blóðrásina, er það kallað hjartabilun. Dælugeta hjartans getur hafa minnkað að miklu eða litlu leyti. Ef þú finnur fyrir mikilli mæði, meira að segja við litla áreynslu, eða finnur fyrir mikilli þreytu, getur það verið merki um byrjun á hjartabilun. Þú ættir þá að leita læknis til að fá rétta sjúkdómsgreiningu.

Mikilvægt er að viðhalda líkama sínum. Dagleg hreyfing eins og göngutúrar, hjólreiðar eða önnur hreyfing er mikilvægur þáttur í góðri heilsu, þrátt fyrir að þú sért með hjarta- og æðasjúkdóm.

Reiknað er með að á Íslandi séu u.þ.b. 5000 einstaklingar með hjartabilun.

Text SizeAAA