Hjartaöng
U.þ.b. 7500 Íslendingar hafa einkenni um hjartaöng, sem lýsir sér sem verkir í brjósti. Auk þess hafa u.þ.b. 5000 einstaklingar til viðbótar sjúkdóminn, án þess að vera með verki.
Ef kransæðarnar sjá ekki hjartavöðvanum fyrir nægu súrefni, finnur fólk fyrir því sem verk eða óþægindum í brjóstinu. Orsökin fyrir súrefnisskortinum getur verið æðakölkun (kólesterólútfellingar).
Sumir sjúklingar geta fengið einkenni án þess að það sé vegna æðakölkunar. Það getur verið vegna krampa í kransæðunum. Oft koma þessir verkir í hvíld. Að jafnaði kemur hjartaöng fram við líkamlega vinnu, þegar maður æsir sig upp eða við kulda.
Margir lifa við þetta og langur tími getur liðið þar til sjúklingurinn leitar læknis vegna einkenna sinna. En það er mjög mikilvægt að tala við lækninn um verkina, því oft er til góð hjálp við einkennunum. Einnig er mikilvægt að hefja fyrirbyggjandi aðgerðir gegn áframhaldandi þróun æðakölkunarinnar, sem getur leitt til dauða..
Ef þú færð skyndilega kröftuga verki, sem svarar ekki meðferð, skaltu alltaf leita læknis án tafar.