Hafðu samband

Þvagleki

Sjúkdómurinn sem við tölum ekki um

Talið er að allt að fimmtíu þúsund Íslendingar séu með þvagleka. Vandamál þetta hrjáir aðallega konur en einnig karla sem komnir eru yfir fertugt. Einkennin lýsa sér á þann hátt að fólk á erfitt með að halda í sér, til dæmis vegna mikillar þvaglátaþarfar, við íþróttaiðkun eða aðra áreynslu, s.s. hósta og hlátur. Sumir hafa svo tíð þvaglát að stundum ná þeir ekki á salernið í tæka tíð. Þó að þvagleki sé jafn algengt vandamál sem raun ber vitni þá er hann samt sem áður feimnismál. Fólki finnst vandræðalegt að ræða um þvagleka við aðra og aðeins lítill hluti fólks ræðir vandamálið við lækninn sinn.

Fyrir vikið verður þvagleki að miklu vandamáli sem fólk burðast með, en staðreyndin er sú að í langflestum tilfellum er hægt að ráða bót á honum - oft með einföldum aðgerðum.

Með bestu kveðjum,
Pfizer á Íslandi


Upplýsingar um þetta meðferðarsvið eru hugsaðar sem leiðbeinandi eða viðbótarupplýsingar og mega ekki koma í staðinn fyrir samtal við lækni eða annað heilbrigðisstarfsfólk.

Text SizeAAA