Líkamleg áreynsla hefur í för með sér þrýsting á þvagblöðru. Við áreynsluþvagleka eru grindarbotnsvöðvar oft orðnir slappir og slímhimnur í þvagrás og fæðingarvegi hafa þynnst. Vegna þessa minnkar viðnám þvagrásar og þvag lekur við áreynslu. |
|
Við bráðaþvagleka verða ósjálfráðir samdrættir í blöðrunni vegna aukinna taugaboða frá heilanum. Þessir ósjálfráðu samdrættir valda því að blaðran tæmir sig skyndilega án þess að hægt sé að hafa stjórn á því. |