Hvað er þvagleki?
Ósjálfráð þvaglát af hvaða toga sem er. Þvagleki er það ástand þegar fólk getur ekki haldið í sér og það "dropar" eða fólk beinlínis missir þvag.
Hverjir fá þvagleka?
Börn
Þó að barnið þitt pissi undir á nóttunni getur það verið fullkomlega eðlilegt ástand. Flest börn eru farin að geta stýrt þvaglátum við þriggja til fjögurra ára aldur en þó eru drengir stundum seinni til. Þegar barnið er komið á skólaaldur og pissar enn í buxurnar kann það að vera merki um ósjálfráð þvaglát en þau geta stafað af vanstarfsemi í þvagblöðru- eða grindarbotnsvöðvum.
Í öllum tilfellum er góð regla að leita læknis til að fá aðstoð við að leysa vandann áður en hann verður að óyfirstíganlegu vandamáli fyrir barnið.
Karlar
Nýleg dönsk Gallup rannsókn hefur leitt í ljós að 40% allra karla yfir fimmtugt eiga í erfiðleikum með þvaglát. Oftast má rekja vandann til stækkunar á blöðruhálskirtli sem veldur því að karlar eiga meðal annars erfitt með þvaglát. Þeir geta t.d. fengið yfirleka eða bráðaþvagleka. Fæstir karlanna ræða vandann við lækninn sinn þótt í flestum tilfellum sé hægt að ráða bót á vandanum með einföldum aðgerðum.
Konur
Samkvæmt könnun sem gerð var meðal 10.000 íslenskra kvenna á aldrinum 30 - 75 ára kom í ljós að 38% höfðu haft þvagleka af einhverju tagi á undangengnum 4 vikum (*1). Þær eiga þá erfitt með að halda í sér þegar þær stunda íþróttir, hósta eða hnerra, eða þá að þvaglátsþörfin verður svo sterk og skyndileg að þær ná ekki á salernið í tæka tíð. Nokkrar gerðir þvagleka eru þekktar meðal kvenna. Áreynsluþvagleki er algengastur en hann má oft lækna með einföldum aðgerðum.
Heimild: (*1) Guðmundur Geirsson, Guðmundur Vikar Einarsson, Eiríkur Orri Guðmundsson og Þorsteinn Gíslason (2002). "Þvagleki meðal íslenskra kvenna - faraldsfræðileg rannsókn". Læknablaðið 4. tbl. 88. árg., 7-8.