Hjá lækninum
Það kunna að vera margar ástæður fyrir þvagleka. Mikilvægt er því að fara til læknis og fá rétta einkennagreiningu. Meðhöndlun á þvagleka fer eftir tegund þvagleka og orsök vandamálanna.
Læknirinn spyr fyrst og fremst um einkenni:
- Hversu lengi hefur vandamálið verið til staðar?
- Við hvaða aðstæður áttu erfiðast með að halda í þér?
- Hversu oft ferðu á salerni á nóttunni?
- Nærðu að komast á salerni í tíma?
- Hvað drekkurðu mikið yfir daginn?
- Ert þú með hægðatregðu?
- Er þvagleki algengt vandamál hjá þér?
Til þess að geta fundið rétta greiningu þarf læknirinn að:
- Fá þvagsýni til að athuga hvort finnist bakteríur, blóð eða þess háttar.
- Framkvæma kvenskoðun, þar sem slímhimnur eru skoðaðar og athugað hvort um blöðrusig er að ræða eða hnúta í legi.
Einnig getur læknirinn þurft að vísa til sérfræðinga, til dæmis ef þarf að spegla blöðruna eða fara í ómskoðun.
Færa dagbók
Áður en farið er til læknisins getur verið gagnlegt að skrifa niður hvenær farið er á salerni og færa inn í vökva- og þvaglátaskrá. Í þrjá daga skrifarðu niður hversu mikið þú drekkur, hversu oft þú ferð á salerni og hversu mikið þvag kemur í hvert skipti (svona um það bil). Einnig þarf að skrá klukkan hvað þú drekkur og pissar. Taflan gefur lækninum góðan grundvöll til að byggja á þegar hann greinir tegund þvagleka.
Góður undirbúningur
Það reynist mörgum erfitt að ræða um þvagleka en ef þú vilt fá bót á honum er nauðsynlegt að tala um hann. Eigðu því sjálf/ur frumkvæðið að því að tala um þetta. Reyndu að vera heiðarleg/ur og undirbúðu þig vel heima - taktu ef til vill með þér þvagprufu og þvaglátaskrá. Það getur verið stuðningur bæði fyrir þig og lækninn.