Hafðu samband

Hagnýtar upplýsingar varðandi þvagleka

  • Þvagleki getur verið einkenni sem kemur og fer, til dæmis vegna þvagfærasýkingar, þvagteppu eða annarra sjúkdóma. Oft má meðhöndla þvagleka með tiltölulega einföldum aðgerðum.


  • Hjá karlmönnum stafar þvaglekinn oft af vandamálum í blöðruhálskirtli.


  • Leitaðu til læknis um leið og þér finnst vandamál varðandi þvagheldni verða viðvarandi.


  • Læknirinn rannsakar þá oftast þvagið með tilliti til sýkinga og hvort gildi sykurs, eggjahvítu og blóðs sé óeðlilegt. Þegar niðurstöður úr þessum rannsóknum liggja fyrir getur læknirinn sagt fyrir um orsökina og jafnvel um hvaða gerð þvagleka er að ræða.


  • Grindarbotnsæfingar og blöðruþjálfun eru mjög góðar æfingar til að fyrirbyggja og bæta úr vandamálum tengdum þvagleka.


  • Eftir fæðingu geta margar konur, sjálfar, komið í veg fyrir þvagleka með því að gera grindarbotnsæfingar.


  • Mikilvægt er að fylgja ákveðnu ferli, t.d. tæma blöðruna á þriggja eða fjögurra klst. fresti.


  • Drekktu einn og hálfan lítra af vökva yfir daginn, meira er ekki nauðsynlegt. Eftir sólarhring skilur líkaminn að jafnaði út 1½ lítra af þvagi.


  • Forðastu að drekka kaffi og te á kvöldin áður en þú ferð að hátta þar sem það hefur þvagræsandi áhrif.


  • Passaðu upp á hægðirnar. Hægðatregða eykur þrýsting á blöðruna og getur valdið ertingu í blöðru.
Text SizeAAA