Hafðu samband

Að lifa með þvagleka

Hvernig hefur þvagleki áhrif á daglegt líf ?

Skert lífsgæði

Fjöldi karla og kvenna búa við skert lífsgæði vegna þvagleka.

Venjulegar daglegar athafnir verða erfiðleikum bundnar. Bara það að fara í búðir, göngutúra eða sund getur orðið að svo miklu vandamáli að sumir hætta alveg að iðka íþróttir eða að hreyfa sig á annan hátt.

Þegar verst lætur geta vandamál tengd þvagleka orðið það yfirþyrmandi að fólk hættir að fara út á meðal fólks og einangrast félagslega.

En í dag er engin ástæða til að draga sig í hlé frá félagslífi og íþróttum þar sem mörg ráð og hjálpartæki eru til við þvagleka.

Feimnismál

Sjúklingar með þvagleka eiga oft erfitt með að tala um vandamálið við fjölskyldu og vini. Mörgum finnst einnig vandræðalegt að þurfa að segja lækni sínum að þeir missi þvag. Samkvæmt rannsókn sem Gallup gerði árið 1997 á Íslandi, kemur í ljós að auk vandamála við þvaglát eru það helst kynlífsvandi og þunglyndi sem fólk á erfitt með að tala um.

Svefn og þvagleki

Ef eðlilegur nætursvefn er stöðugt truflaður, t.d. með salernisferðum, hefur það oft í för með sér bæði þreytu og minnkandi starfsgetu.

Kynlífsvandi og þvagleki

Þvagleki getur einnig átt sinn þátt í því að upp koma vandamál í samlífi fólks. Það þykir niðurlægjandi að missa þvag við samfarir eða lykt af þvagi. Sjálfsmyndin er í "molum". Sumir hætta alveg að stunda kynlíf af ótta við að eitthvað fari úrskeiðis. Gott ráð er að reyna alltaf að tæma blöðruna fyrir samfarir og þvo sér til að koma í veg fyrir þvaglykt.

Hreyfing og þvagleki

Þrátt fyrir að langt kunni að vera í næsta salerni þegar íþróttir eru stundaðar, t.d. golf og göngutúrar, er samt nauðsynlegt að halda áfram að hreyfa sig til að halda sér í formi. Auk þess er gott fyrir sálartetrið að hreyfa sig.

Text SizeAAA