UM PFIZER Á ÍSLANDI | HAFÐU SAMBAND | LYF | MEÐFERÐARSVIÐ | FRÆÐSLUBÆKLINGAR | HEILBRIGÐISSTARFSFÓLK
ENGLISH VISITORS | PFIZER.COM | PFIZER.DK | PFIZER.SE | PFIZER.NO | VISTOR.IS
   
  Pfizer á Íslandi
  Hjarta- og æðasjúkdómar
  Langvinn lungnateppa
  Liðverkir
  Ristruflanir
  Taugaverkir
  Þvagleki
  Annað
   
   
Um Pfizer á Íslandi

Lagalegur fyrirvari

Lyfjafyrirtækið Pfizer er leiðandi á sviði lyfjarannsókna og lyfjaframleiðslu í heiminum. Pfizer var stofnað í Bandaríkjunum 1849 en í dag starfa yfir 100.000 starfsmenn í yfir 150 löndum hjá fyrirtækinu. Pfizer rekur sjálfstæða markaðsdeild á Íslandi í Vistor hf., en hún heyrir undir dótturfyrirtæki Pfizer í Danmörku.

Sjúklingurinn er miðpunktur í öllu starfi okkar. Pfizer lítur á það sem hlutverk sitt að sjá læknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki fyrir traustum upplýsingum sem geta stuðlað að öruggri og góðri meðferð. Til að svo megi vera þarf fyrirtækið að vera í góðu samstarfi við sjúklingasamtök, fagfélög og heilbrigðisstéttir. Þannig náum við að setja sjúklinginn í fyrsta sæti og erum í góðum tengslum við samfélagið.

Pfizer hvetur til opinskárrar og markvissrar umræðu og leitar stöðugt nýrra lausna í þágu sjúklinga. Öflug fræðslustarfsemi fer fram á vegum Pfizer fyrir heilbrigðisstéttir. Hún er í formi fræðslufunda og útgáfu fræðsluefnis. Pfizer á Íslandi gefur einnig út fræðslubæklingar fyrir almenning í samráði við sérfræðinga.

Pfizer er stærsta frumlyfjafyrirtækið á Íslandi með 7,6% markaðshlutdeild á fyrsta ársfjórðungi 2010.

Pfizer framleiðir bæði lyfseðilsskyld og lausasölu lyf , fyrir margvísleg meðferðarsvið. Helstu meðferðarsviðin eru:

  • Augnsjúkdómar
  • Gigtarsjúkdómar og verkir. Meira
  • Hjarta- og æðasjúkdómar. Meira
  • Krabbamein og vaxtartruflanir
  • Risvandamál. Meira
  • Tauga- og geðsjúkdómar
  • Sýkingar
  • Þvagfærasjúkdómar. Meira
  • Öndunarfærasjúkdómar og reykingar. Meira

    Starfsmenn Pfizer á Íslandi eru fimm talsins. Þeir veita fræðslu og upplýsingar um lyfin og sjá um markaðssetningu þeirra. Starfsmenn Pfizer á Íslandi hefur aðsetur í Vistor hf.
    Hörgatún 2
    210 Garðabær
    Sími: 535-7000
    Fax: 565-9292

    Hafðu samband