Pfizer á Íslandi
Lyfjafyrirtækið Pfizer er leiðandi á sviði lyfjarannsókna og lyfjaframleiðslu í heiminum.
Pfizer var stofnað í Bandaríkjunum 1849 en í dag starfa yfir 122.000 starfsmenn í yfir 150 löndum hjá fyrirtækinu. Pfizer rekur sjálfstæða markaðsdeild á Íslandi í Icepharma hf., en hún heyrir undir dótturfyrirtæki Pfizer í Danmörku.
Sjúklingurinn er miðpunktur í öllu starfi okkar. Pfizer lítur á það sem hlutverk sitt að sjá læknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki fyrir traustum upplýsingum sem geta stuðlað að öruggri og góðri meðferð.
Til að svo megi vera þarf fyrirtækið að vera í góðu samstarfi við sjúklingasamtök, fagfélög og heilbrigðisstéttir. Þannig náum við að setja sjúklinginn í fyrsta sæti og erum í góðum tengslum við samfélagið.
Meira