Hafðu samband

Háþrýstingur

Við hvern hjartslátt dregst hjartavöðvinn saman og dælir blóði út í blóðrásina. Þrýstingurinn eykst við það í æðunum upp í hæsta þrýsting, sem nefnist "slagbilsþrýstingur". Þegar hjartað er í hvíld, fellur þrýstingurinn niður í lægsta þrýsting eða "þanþrýsting".

Blóðþrýstingurinn er skráður sem slagbilsþrýstingur yfir þanþrýstingi og eðlilegur er hann í hæsta lagi 140/90 og gjarnan lægri en það.

Ef mælst hafa hjá þér hækkuð blóðþrýstingsgildi við endurteknar mælingar, ættir þú að ráðfæra þig við lækninn þinn.

Ef þú hefur fengið háþrýsting staðfestan, er mikilvægt að taka lyfin, sem þér hefur verið ávísað og að blóðþrýstingurinn sé mældur reglulega hjá lækninum þínum. Gert er ráð fyrir því að u.þ.b. 60.000 Íslendingar séu með háþrýsting.

Puls


Þegar þú situr afslappaður í stól er algengt að púlsinn mælist á milli 60 og 80 slög á mínútu. Þetta er hvíldarpúlsinn þinn. Við líkamlega áreynslu eykst púlsinn. Þegar þú reynir á þig er ekki óvanalegt að púlsinn aukist í 100-110 slög á mínútu eða meira.

Vöðvarnir þurfa meira súrefni fyrir vinnuna sem á að framkvæma og hjartað verður þá að senda meira blóð af stað og þarf sjálft að hafa meira súrefni út í kransæðarnar til að geta framkvæmt meiri dæluvinnu.

Því betra formi sem þú ert í (betri þjálfun), þeim mun minni verður púlsaukningin við áreynslu. Það þýðir að hjartavöðvinn getur framkvæmt meiri vinnu með minna súrefni. Ef þú ert í góðri þjálfun, er ekki óvenjulegt að vera með hvíldarpúls sem er 50-60 slög á mínútu.

Text SizeAAA